8.flokkur Hamars

Hveragerði

17.05.2010 08:48:03 / hamar8

Foreldrafundur

Miðvikudaginn 19. maí n.k. verður foreldrafundur allra yngri flokka Hamars í knattspyrnu haldinn í vallarhúsinu við Grýluvöll. Fundurinn hefst kl. 20:00 og verður um klukkustundar langur, en þar munu þjálfarar fara yfir mikilvæg mál fyrir komandi keppnistímabil, s.s.  æfingatíma, mót sumarsins, fjáraflanir ofl. Fulltrúar stjórnar verða einnig á staðnum. Mikilvægt er að foreldrar mæti á þennan fund.

Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest og bestu kveðjur,
Ólafur Jósefsson
Yfirþjálfari yngri flokka
Gsm. 821 – 4583


» 14 hafa sagt sína skoðun

21.12.2009 14:46:29 / hamar8

J-Óla - kveðja

Fyrir hönd knattspyrnudeildar Hamars óska ég öllum iðkendur, foreldrum, þjálfurum, stjórnarmönnum og styrktaraðilum deildarinnar gleðilegra jóla og farsæls komandi árs, með þökk fyrir árið sem er að líða.

Bestu jólakveðjur,

Ólafur Jósefsson

 


» 13 hafa sagt sína skoðun

04.12.2009 14:21:27 / hamar8

Jólamót knattspyrnudeildar Hamars

Jólamót knattspyrnudeildar Hamars verður laugardaginn 12. desember í íþróttarhúsinu. Mæting kl 9:00 jólasveininn kemur svo í heimsókn. Ekkert þátttökugjald og allir fá glaðning. Mæta í búningum og með jólasveinahúfur ef börnin eiga. Myndartaka í lokin. Veitingar fyrir foreldra - kaffi og piparkökur.

Við hlökkum til að sjá ykkur með góða skapið meðferðis.

Bestu kveðjur
Dúfa og Ölli

» 11 hafa sagt sína skoðun

07.10.2009 13:36:43 / hamar8

Næsta æfing 10.10.09

Næsta æfing verður á laugardaginn kl 9:00 - 10:00 í íþróttahúsinu. Hlakka til að sjá sem flesta.

Fótboltakveðja
Dúfa þjálfari :)


» 11 hafa sagt sína skoðun

01.10.2009 20:54:36 / BlogCentral

Nýtt bloggsvæði á BlogCentral

Eigandi þessa nýja bloggs hefur ekki gefið út fyrstu bloggfærsluna sína. Viðkomandi er án efa í óða önn að velja sér flott útlit, aukahluti, hlaða upp myndum og semja meistaraverk til að færa á spjöld sögunnar. Við bjóðum viðkomandi að sjálfsögðu velkominn á BlogCentral!

» 13 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  2  Alls: 3952